Í landi í fyrramálið.

PartrollFallegasti maðurinn um borðGóða kvöldið! Hef þetta bara stutt núna. Verðum í Landi í Neskaupstað í núna með morgninum. Erum með fullan frysti og eitthvað um 650 tonn í bræðslu, þar af 150 tonn afskurð. Samstarfið við makkerinn gekk alveg ljómandi vel. Skildist mér á stýrimanninum að skipin hafi aflað mjög svipað á þessari rúmu viku sem þessi túr er búinn að taka okkur. Bjarni Ólafs millilandaði sl. miðvikudag. Vil ég þakka áhöfninni á Bjarna Ó fyrir samstarfið. Læt hér fylgja eina mynd af Magna sæta. Og aðra sem sýnir hvað skipin eru nálægt hvoru öðru á partrollinu þegar þarf að beygja eða snúa. Og með því segir Marri yfir og út.

Spakmælið: Enginn getur breytt sér, allir geta bætt sig.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Heyrðu! hann er með hjálminn minn mann fýlan.

Brúnn (IP-tala skráð) 18.8.2008 kl. 18:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband