Makríll alstaðar.
15.8.2008 | 18:56
Góða kvöldið! Makkerinn okkar hann Bjarni Ó kom til okkar ertir löndun í Neskaupstað aðfaranótt fimmtudags. Ég var nánast búinn að afskrifa hann um daginn en þeir hafa fengið einhverja viðbót á kvótann sinn. Aflabrögðin hafa verið þokkaleg en hátt hlutfall af Makríl í hverju holi. Erum búnir að lyfta í efsta gat og var það gert um síðasta miðnætti. Höfum verið að fylla upp í vinnsluna með því að heilfrysta Makrílinn, en mun meira fæst fyrir hann hausaðan og slógdreginn. Læt hér fylgja sólarlagsmynd af Bjarna Ólafssyni AK.
Gangafréttir segja að við verðum inni á sunnudagskvöld eða mánudagsmorgun. En sjáum hvað setur. Verið þið sæl og Marri segir yfir og út.
Spakmælið: Kona sem aldrei hefur horft á manninn sinn veiða, veit ekki þvílíkum þolinmæðismanni hún er gift.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.