Til hamingju Tobbi og Fanney!
13.8.2008 | 07:32
Góðan dag! Það er bara búið að ganga bærilega hjá okkur. Erum komnir með rúm tvöhundruð í frystinn og slatta í bræðslu. Annars hefur hlutfall Makríls í aflanum hækkað töluvert sl. sólarhring. Bjarni Ólafsson AK, makkerinn okkar, fór í land til löndunar í nótt með nánast fullt skip, vantaði eitthvað um 150 tonn. Hann fær víst einhverja ábót á kvótann þannig að við trollum eitthvað með honum áfram.
Þessi myndarlegi snáði kom í heiminn 30 júlí síðastliðinn, hann er sonur Tobba háseta og Fanneyjar. Innilegar hamingjuóskir frá áhöfninni á Hákoni. Og með því segir Marri yfir og út.
Spakmælið: Miðaldra maður, þegar hann slekkur ljós af fjárhagsástæðum, fremur en rómantík.
Athugasemdir
Til hamingju með prinsinn. Ekkert smá sætur
Kv.Dísa (hans Sævars)
Dísa (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 10:14
Þökkum fyrir kveðjurnar, hann er þegar búin að segja sín fyrstu orð og þau voru FH.
Kv. Tobbi, Fanney og Prins Þorbjörnsson
Tobbi FH (IP-tala skráð) 13.8.2008 kl. 12:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.