Allt í góðu hjá okkur.
11.8.2008 | 08:09
Góðan dag gott fólk! Fórum frá Neskaupstað aðfaranótt sunnudags að lokinni löndun til móts við nýja makkerinn okkar. Já, kallar komnir með nýjan makker, og er það Bjarni Ólafsson AK. Verð að drífa í því að ná mynd af honum því þetta verður freka stutt samband þar sem þeir á Bjarna eru að klára kvótann sinn og eru í síðustu veiðiferð.
Við viljum þakka Vilhelmsmönnum enn og aftur fyrir samstarfið, sl. júlímánuður sá besti frá upphafi. Vilhelm togar nú á móti Margréti EA. Bæði skipin frá sömu útgerð og sömu áherslur í veiðunum. Óska ég þeim góðs gengis.
Læt hér fylgja með mynd af Andra okkar VMK-manni með þökkum fyrir góðar kveðjur frá hans ekta spúsu. Andri kom með einhverja sögu um að hann ætli ekki að skerða hár sitt né skegg fyrr en hann er búinn með einhvern vegg fyrir norðan. Eins og það sé ekki nóg af veggjum norður á Akureyri. Ég held að hann sé að safna fyrir atvinnuviðtal sem verður í byrjun vetrar. Það hringir kannski klukkum hjá einhverjum. Marri kveður að sinni og segir yfir og út.
Spakmælið: Ef konan þín veitir þér réttláta meðferð......þá þakkaðu guði.
Athugasemdir
Ég hélt að Andri ætlaði ekki á sjóinn fyrr en veggurinn væri búinn ;) eruð þið ekki frekar að tala um eldhúsið ?? Annars er Andri alltaf sætur,- skegg eða ekki.
Þórhildur Helga Þorleifsdóttir, 11.8.2008 kl. 23:33
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.