Hafa svið þessi áhrif á aflabrögð?
6.8.2008 | 08:06
Góðan dag! Búið að vera ágætis kropp hjá okkur við fengum 300 tonn, Vilhelm tók svo tvö hol í beit 700 tonn+ og svo 300 tonn. Við fengum svo 400 tonn+ og makkerinn 500 tonn og dældi einhverju af því í Súluna. Makkerinn fór svo í land í gær til löndunar en Guðmundur VE hljóp í skarðið fyrir hann. Erum að leita núna og lítið að sjá síðan í gær, toguðum á móti nýja makkernum frá níu í gærkvöldi og var lítið sem ekkert í þegar híft var. Við erum að nálgast 400 tonn í frystinn og fjögurlestarnar að fyllast af makríl til bræðslu.
Nú er spurningin hvort sviðin sem Brúnn var með í matinn í fyrrakvöld hafi þessi áhrif á aflabrögð. Allavega hefur maður heyrt að það vísi á brælu eða aflabrest þegar svið eru elduð til sjós. Þjóðtrú eða staðreynd dæmi hver fyrir sig. Annars virðist þeim líða vel þarna í heita vatninu, gott ef maður sér ekki örla á glotti. Og með því segir Marri yfir og út.
Spakmælið: Menn koma oft ekki auga á hamingjuna, vegna þess að hún kostar ekki neitt.
Athugasemdir
Það er búið að vera rugl á útliti bloggsins sl. viku. Ekkert gengur hjá mér að lagfæra það. Nú vil ég biðja þá sem eru í landi og eru með aðgang að athuga hvort þeir geti lagfært útlitið á blogginu. Bkv. Marri
Áhöfnin á Hákon EA-148, 6.8.2008 kl. 08:13
Það er tómt rugl að svið hafi slæm áhrif á aflabrögð. Fékk sviðaveislu daginn fyrir afmælisdaginn minn á loðnuvertíðinni 1975. Þá vorum við á leið á miðin fyrir austan. Stöldruðum við í ca 4 tíma áður en við lögðum af stað með prikið fult, 390 tonn, til Siglufjarðar. Þetta góða kast þakka ég enn í dag bara sviðunum.
Gott fiskerí strákar.
PS. Er Svenni skipsjóri á Hákoni??
Dunni, 6.8.2008 kl. 08:17
Sæll Dunni! Nei Svenni er ekki skipstjóri það eru þeir Guðjó J g Björgvin. Sjáum til með sviðin gef þeim sjens framm eftir degi. Kv. Marri
Áhöfnin á Hákon EA-148, 6.8.2008 kl. 09:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.