Litlar fréttir en þó einhverjar.

Góðan dag! Fórum frá Neskaupstað um áttaleitið í gærmorgun eftir löndun á 500 tonnum af frystum afurðum og 1250 tonnum í bræðslu. Aflaverðmæti ekki gefið upp hér á þessari síðu, þið eigið að vita betur strákar á Aðalsteini. Köstuðum í gærkvöldi þ.e.a.s. makkerinn okkar (Vilhelm) og til að gera langa sögu stutta þá var hífað lítið í nótt. Annars voru skipin að taka upp í 500 tonna hol eftir daginn en við misstum af sjensinum í gær. Það leiðinda atvik átti sér stað um borð í Vilhelm í gær að þar slasaðist maður þegar átti að kasta trollinu. Hann fékk þungt höfuðhögg og var fluttur með þyrlu í land, vonum að hann nái fullum bata.  Erum að leita núna en vonandi finnur stýrimaðurinn eitthvað fljótlega til að kasta á.  Gangið á guðs vegum og gætilega um gleðinnar dyr, góða verslunarmannahelgi. Og með þeim orðum segir Marri yfir og út.

Spakmælið: Við ættum aldrei að tala til að þóknast sjálfum okkur, heldur þeim, sem hlusta á okkur. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalsteinn Jónsson SU-11

Hehe það er nú hægt að senda skilaboð hér á bloggkerfinu (við förum með öll skilaboð sem okkur berast sem trúnaðarmál).

Aðalsteinn Jónsson SU-11, 2.8.2008 kl. 03:01

2 identicon

Blessaðir strákar,, makkerinn talar:)  drengurinn er ekki í lífshættu, hann kemur til með að ná sér alveg, sem er mjög gott.  Þyrlan kom og sótti hann og það gekk allt mjög vel.  Sýnir enn og aftur hversu mikilvægt það er að hafa klára karla og þyrlur til að hjálpa til þegar slys ber að höndum úti á sjó.

Árni Jóhannesson (IP-tala skráð) 3.8.2008 kl. 04:21

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband