Hvar er heilinn
27.7.2008 | 13:24
Já hann dæsir kokkurinn okkar þessa dagana því Þýska uppþvottar-djásnið hefur verið heilalaust í nokkurn tíma. Hann hefur þráðspurt menn hvort þeir viti ekki um heila á lausu fullviss um að það sé af nógu að taka.
Eitthvað hefur sá röndótti verið að flækast fyrir okkur síðustu daga þannig að norðmenn geta haldið áfram að vera súrir. Við og partnerinn deildum u.þ.b. 1000T af makríl og þessa stundina verið að frysta hann. Það er komið nálægt 300T í frystinn aðallega síld og menn bara bjartsýnir.
Tobba og frú óskum við alls hins besta, vonandi kemur fæðingin til með að ganga vel. Eins er okkar einlaga von að þú látir nú af þessum hvimleiða vana að brjóta í þér bein.
Stakkageymslan segir löndun á miðviku- eða fimmtudag, hvað sem það nú þýðir.
Spakmæli dagsins: Þeir sem vita, tala ekki, þeir sem tala, vita ekki.
Kveðja Matti
Athugasemdir
Góðan dag félagar! Gaman að sjá nýjan bloggritara. Það er greinilegt að það eru margir færir pennar um borð
. Flott að vel gangi hjá ykkur, sjáumst í næsta túr. Kveðjur Hilmar
Áhöfnin á Hákon EA-148, 29.7.2008 kl. 12:07
Flott hjá ykkur strákar.Er með eitt spakmæli handa ykkur fyrst þið eru alltaf að koma með sollis. "Sumir þykjast vita allt,en svo vita þeir heldur ekkert annað."
Góða veiði áfram.
Hertoginn á Bjarti NK (IP-tala skráð) 29.7.2008 kl. 13:46
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.