Línuskytturnar á Vilhelm.
18.7.2008 | 23:25
Jæja gott fólk. Það er ýmislegt sem menn gera sé til gamans á sjó. T.d. sýndu línuskytturnar á betri helmingnum okkur hversu megnugir þeir eru í búningahönnun.
Það verður erfitt fyrir okkar skyttur að toppa þetta en það verður reynt. Við verðum að treysta á frumlegheitin hjá okkar mönnum. Vænti ég þess að Jón Gunnar láti ekki sitt eftir liggja í þeim efnum.
Þetta eru alveg yndisleg uppátæki og lífga bara upp á tilveruna hérna á miðunum.
Annars viljum við bjóða félögum okkar á Vilhelm ,sem spila golf, að taka þátt í golfmóti með okkur, til minningar um Oddgeir Jóhannsson skipsstjóra, í næstu löndun á Neskaupsstað. Þeir sem ekki spila golf geta þá bara orðið kylfuberar.
Gullkornið er."Vitrastir eru þeir, sem best geta lagfært ókosti sína."
Múffi kveður.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.