Múffi, Marri og Golli Jó
17.7.2008 | 10:50
Jæja sælt veri fólkið.
Bloggritari þakkar öllum sem hafa sýnt blogginu okkar viðbrögð. Einn spurði hvaða nöfn væru á bak við helstu bloggritara síðunnar. Það er skemmst frá því að segja að Magnús Þ Öfjörð vélstjóri hefur skáldanafnið Múffi, Hilmar Sigurðsson ber skáldanafnið Marri og einnig hefur vinnslustjórinn og framsóknarmaðurinn í fæðingarorlofi Ingólfur Jóhannsson ,Golli Jó, ritað hér góða og kjarnyrta pistla. En hver er Á.J ?
Annars er það af okkur að frétta að við fórum út frá Neskaupsstað í gær um kl:17:30 eftir að hafa landað um 1000T í bræðslu og 330 T af frosnum síldarflökum. Áfram verður haldið með partrollsveiðarnar á móti Vilhelm Þorsteinssyni EA og eiga þeir fyrsta dráttinn í þessari veiðiferð.
Gullkorn dagsins er:" Enginn er réttlátur á meðan hann er reiður."
Með þeim orðum kveður Múffi.
Athugasemdir
Gangi ykkur bara vel í þessari veiðiferð
Það er rosalega gaman að geta fengið fréttir af ykkur með því að fara á þessa blogg síðu þið eruð svo duglegir að skrifa
Með bestu kveðju Ella
Ella (IP-tala skráð) 17.7.2008 kl. 11:43
Frábært. Var hér á ferð.
Guðmundur St. Valdimarsson, 17.7.2008 kl. 14:34
Góðan daginn félagar. Fyrirgefið hversu seint ég svara, (er ekki á síðunni upp hvern dag) en ÁJ er Ármann Jónsson fyrrverandi Áskelslimur. Bestu kveðjur til ykkar allra en sérílag til þeirra Grenvisku.
Ármann Jónsson (IP-tala skráð) 22.7.2008 kl. 11:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.