Löndun á miðvikudag.

Jæja gott fólk nú er víst farið að sjá fyrir endann á þessum túr, eigum að landa á miðvikudaginn á Neskaupsstað. Verðum þá væntanlega komnir með góð 300T í frystinn og 700 plús í gúanó. Veiðin hefur gengið ágætlega og samstarfið við betri helminginn með miklum ágætum. Erum við sammála félögum okkar á Vilhelm um hjónabandið, og sendum þeim þakkir fyrir kveðjurnar.  Jón Gunnar verður settur í að útbúa  skotskífu hið fyrsta, ef ekki þá verður hann bara að stilla sér upp sjálfur!

Annars eru þessir viku langir túrar bara alveg ágætir, held að það geti verið auðvelt að venjast þeim.

Við þökkum þeim sem hafa sýnt viðbrögð við blogginu okkar og sendum saknaðarkveðjur til fyrrum skipsfélaga, Högna Páls, og er hann ávallt velkominn um borð í heimsókn ef hann er á ferðinni.

Gullkorn dagsins er: "Vinalaus maður ferðast eins og útlendingur alla ævina."

Og með þeim orðum kveður Múffi.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Bergur Thorberg

Þegar maður fer til útlanda ferðast maður sem útlendingur. Bara gaman.

Bergur Thorberg, 14.7.2008 kl. 21:07

2 Smámynd: Heiða  Þórðar

Snilld að halda úti bloggi af miðum.

Heiða Þórðar, 15.7.2008 kl. 03:16

3 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Upgrade your email with 1000's of emoticon iconsUpgrade your email with 1000's of emoticon icons

Kjartan Pálmarsson, 15.7.2008 kl. 18:24

4 identicon

Jæja " gott fólk ", eins og sumir segja. Alltaf gott að fá blogg af miðunum en mætti alveg að ósekju vera kjarnyrtara og  fleiri sögur(gróu) í líkingu við það sem tíðkaðist hjá Margreti EA fyrir ritskoðun. Ein spurning, hverjir eru síðuritarar, öðru nafni Marri og Múffi.
 Spakmæli kvöldsins: Hvort er betra vín á rauðum belg eða gráum.

Og með þeim orðum kveður ÁJ. 

Á.J (IP-tala skráð) 15.7.2008 kl. 23:51

5 identicon

Góðan daginn. Glæsilegt að lesa bloggið frá ykkur. Takk fyrir.

Regína (IP-tala skráð) 16.7.2008 kl. 08:43

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband