Blogg af miðunum.
12.7.2008 | 20:49
Jæja gott fólk, þá kemur smáblogg.
Af okkur er bara allt þokkalegt að frétta. Karlarnir allir heilir á sál og líkama.
Erum komnir með um 200 T í frystinn og eitthvað af gúanói.
Gluggahrossin eru eitthvað óhress með aflabrögðin segja allavega að við séum að fá eitthvað minna heldur en aðrir á bleyðunni. Er það ekki alltaf svoleiðis um borð í öllum fiskiskipum? Nú þurfa áhafnarmeðlimir að standa saman og hvetja okkar menn svo ekki glatist sjálfstraustið.
Læt hér fylgja með mynd af betri helmingnum.
Á henni erum við að byrja að dæla afla yfir í Vilhelm, búnir að taka okkar skammt og þeir fá sinn. Aflanum er skipt bróðurlega á milli skipa.
Sendum félögum okkar, á betri helmingnum, okkar bestu kveðjur og þökkum gott samstarf og vonandi verður framhald á því.
Gullkornið er eftirfarandi: "Hamingjan vex á okkar eigin akri og hana er ekki hægt að tína í annarra görðum".
Við sendum Marra og Golla Jó hlýjar kveðjur í rigninguna á Akureyri og vonum að það fari núa að stytta upp og hlýna á þessu landshorni.
Og með þeim orðum kveður Múffi.
Athugasemdir
Gullkornið er gott. Gangi ykkur allt í haginn og komið heilir heim.
Bergur Thorberg, 12.7.2008 kl. 21:02
Elsku stubbarnir !
Það koma tímar sem ég sakna ykkar !
Högni Páll Harðarson, 13.7.2008 kl. 01:12
Sælir félagar við Marri erum hér berir að ofan og klárir í pakkann, Múffi ég veit að þér og Gunnari B finnst gott að búa i Kópavogi. Bið að heilsa og koma svo grimmir. Kv Golli Jó
Áhöfnin á Hákon EA-148, 13.7.2008 kl. 17:13
Jú það er nú bara bæði gaman og gott að hafa ykkur sér við hlið og það er mál manna hér um borð að til annars eins hjónabands hafi nú ekki verið stofnað á miðunum. Spurning hvort Jón Gunnar ætli ekki að fara að útbúa skotskífu þarna hinumegin, svona til léttra æfinga fyrir okkur:) .
Kv. af Vilhelm.
Árni J. (IP-tala skráð) 13.7.2008 kl. 23:23
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.