"Makríl/síldarævintýri"??????
10.7.2008 | 10:52
Jæja gott fólk þá koma aðeins meiri fréttir.
Fórum út frá Neskaupsstað um 4-leitið í gærmorgun ásamt betri helmingnum. Köstuðum eftir hádegi í gær og hífðum í gærkvöldi um 100 T af makríl/síld og dældum öðru eins um borð í betri helminginn. Betri helmingurinn átti svo annað holið sem híft var í nótt og var talað um að það hefði verið um 70 T. Erum í þessum skrifuðum orðum að færa okkur eitthvað austar á miðunum í von um meiri afla.
Spakmæli dagsins er:" Ekki fer ætíð betur, þá breytt er."
Og með þeim orðum segir Múffi yfir og út.
Athugasemdir
Þið eru bara að sigra heiminn!
GRT (IP-tala skráð) 11.7.2008 kl. 00:50
Sælir félagar! Vona að það gangi nú allt vel hjá ykkur. Er sjálfur hér í rigningunni á Aey og hef það bara gott. Var að koma úr kaffi frá Golla Jó og var hann bara sæll og glaður í fæðingarorlofinu. Þið eruð væntanlega búnir að finna síldina, er það ekki
. Bestu kveðjur, Marri.
Áhöfnin á Hákon EA-148, 12.7.2008 kl. 15:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.