Í landi á morgun, með öngulinn á stað þar sem sólin skín ekki.
7.7.2008 | 18:27
Jæja gott fólk. Nýjustu fréttir herma að það eigi að landa gúanói á morgun, óvíst með þetta frosna. Erum aðeins komnir með um 150T í frost og kannski 700 T í gúanó. Hlerinn okkar í partrollsveiðunum er víst kominn með eitthvað meira, allavega þurfa þeir að koma aflanum í land í viðunandi ástandi og við fylgjumst að eins og góðu pari sæmir.
Einhver hafði á orði í vor, þegar að síldveiðarnar voru að hefjast og vel fiskaðist, að það væri eins lítið mál að ná kvótanum eins og að drekka kalt vatn. Eithvað virðist nú vatnið farið að volgna!
Spakmæli dagsins er: "Sennilega er varla til sá maður, sem ekki á blómsturgarð, læstan inni einhverstaðar í hjarta sínu".
Múffi kveður og segir yfir og út.
Athugasemdir
þið verðið að fara hisja upp um ykkur brækurnar.
Gudni (IP-tala skráð) 8.7.2008 kl. 21:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.