Kippur í lengra lagi.
8.6.2008 | 10:17
Sælt veri fólkið! Hífuðum lítið í morgun og var búið að toga síðan í gærlvöldi. Höfum afla til að fylla afturlestina og ekkert að sjá í augnablikinu. Fréttir af góðum torfum 140 mílur norðaustur af okkur og er stefnan sett á þá veiðislóð í augnablikinu. Annars er allt gott að frétta og allir við góða heilsu. Kokkurinn okkar hann Brúnn frá hóli dregur hverja stórveisluna framm úr erminni, algjör snillingur maðurinni. Kanski finnst manni hann enginn snilli þegar maður stígur á vigtina. Og með því kveður Marri í bili.
Spakmælið: Vendu þig á vandvirkni, tuttugu störf hálfgerð eru ekki jafnmikils virði og eitt fullgert.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.