Allt í fínu standi.........
5.6.2008 | 10:00
Jæja gott fólk, aðeins meira blogg.
Hífðum í morgun u.þ.b. 150 T af jafnri og góðri síld, 300 - 310 g meðalvigt.
Vorum búnir að frysta um 120 T síðast á miðnætti. Erum nú staddir inni í Jan Mayen lögsugunni rétt norðan við miðlínuna. Aðeins tvö íslensk skip eru nú stödd á miðunum hér Hákon EA og Guðmundur VE. Einnig er einn Færeyingur á svæðinu.
Annars allt fínt af okkur að frétta, veðrið ágætt og góður andi í hópnum.
Gullkorn dagsins er: "Vitringurinn lærir meira af heimskingjanum en heimskinginn af vitringnum."
Múffi kveður og segir yfir og út.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.