Komnir á fullt sving.
4.6.2008 | 07:37
Sælt veri fólkið! Mér sýnist allir sem komu um borð eftir sjómannadag hafi verið sælir og glaðir. Undirritaður gerði sér ferð í vöggu útgerðarinnar, Grenivík, um sjómannadagshelgina til að halda daginn hátíðlegan. Var það ánægjuleg ferð og margt fallegt og skemmtilegt að sjá. Vil ég þakka skipsfélögum mínum fyrir móttökurnar. Fórum til veiða frá Neskaupstað kl. 17:00 á mánudaginn var og var stefnan tekin á síldarmið norð norð austur af landinu. Létum trollið fara uppúr hádegi í gær og hífðum 300 tonn af fallegri síld í gærkvöldi og er vinnslan þegar komin á fullt sving. Bkv. Marri.
Spakmælið: Gerðu sjálfan þig ómissandi, og þá muntu þokast upp á við. Láttu eins og þú sért ómissandi, og þá muntu þokast í burtu.
Es. Hvar er fitumælirinn?
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.