"Svartur sjór af síld"
23.5.2008 | 23:36
Jæja gott fólk smá blogg hérna.
Bloggritari hefur verið dálítið langt niðri síðan að úrslitin urðu ljós í meistaradeildinni en góð síldveiði er að bæta það upp.
Við óskum Man. United aðdáendum til hamingju með bikarinn, þeir eru vel að honum komnir.
Ættum að vera komnir með góð 300 T í frystinn um miðnættið. Vinnsla og frysting hefur gengið nánast áfallalaust fyrir sig. Reynt er að láta veiðina ráðast af vinnslugetunni þannig að ávallt er verið að vinna ferska síld.
Nú er hafið hér um borð veðmál um það i hvaða sæti Ísland lendir í í Evrovision söngvakeppninni. Hver þátttakandi leggur undir 1500 kr og sá sem sigrar fær þá pottinn.
Sumum hér um borð finnst þessi keppni vera algjör lágkúra og kalla hana jafnvel hinum verstu nöfnum. T.d. hefur "Norðlensk hommasöngvakeppni" heyrst á göngunum.
Annars er gullkorn dagsins eftirfarandi: "Sá þarf mikið að sjóða, sem mörgum vill bjóða."
Múffi kveður og segir yfir og út.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.