Til síldveiða höldum nú.....

Jæja jæja jæja. Sælt veri fólkið.

Smá hlé hefur verið á bloggskrifum upp á síðkastið en það atvikast af því að helstu bloggritarar hafa verið í frí á sama tíma. 

Af okkur er það helst að frétta að eftir  löndun  þann 14. maí var haldið aftur til kolmunnaveiða  suðvestur af Færeyjum og urðu aflabrögð frekar lítil. Komum til baka úr þeirri veiðiferð til Neskaupsstaðar þann 18 maí með öngulinn í rassinum. Landað var 70-80 T af heilfrystum kolmunna, kolmunninn kvaddur og gert klárt á síldveiðar á íslenskri-norskri síld.

Farið var frá Neskaupsstað kl.21:30 þann 18. maí í síldarleit.

Gullkorn dagsins er: "Fljúg ei svo hátt þú fallir"

Múffi kveður og segir yfir og út.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Innlitskvitt!!!!

Bið að heilsa Grensurunum um borð! Já já og rest líka.

Áfram svart/hvít röndóttir hvort sem er í efstudeild eða einhverri annarri-deild

Kjartan Pálmarsson, 20.5.2008 kl. 12:37

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband