Hæ hæ hæ, hæ þú, hæ þú.........
1.5.2008 | 07:40
Góðan dag! Vinnslan gengur bara vel og erum við komnir með tæp 500 tonn í frystinn. Veiðarnar hafa aftur á móti verið með tregasta mót þó að vel hafist undan að fiska í vinnsluna. Fengum eitthvað um 150 tonn eftir ellefu tíma tog í gærkvöldi sem þykir ekkert sérstakt eftir svo langan tíma. Það var kippt eitthvað austar í nótt og verið að láta það fara núna í þessum skrifuðu orðum. Nú þarf að fara að fiskast betur því nú er komið að því að við þurfum að fara að salla á okkur í bræðsluna. Við erum að gæla við að verða um helgina í landi með fullt skip og vonandi gengur það eftir. Þeir á Bjarna Ólafssyni voru að koma á miðin í gær eftir löndun og færðu okkur smá pakka úr landi. Kunnum við þeim bestu þakkir fyrir. Og þá segir Marri yfir og út.
Spakmælið:Skemmtanir eru hamingja þeirra, sem hugsa ekki.
Athugasemdir
Hlaut að koma að spakmæli sem ég er fullkomlega ósammála !
Nú er annars kominn sá árstími að fært er orðið fyrir tveggja hjóla farartæki yfir Oddsskarð þannig að við feðgar erum með á stefnuskránni að kíkja í kaffi þegar þið verðið í landi.
Svo sé ég á myndunum að Brúnn stórskytta er farinn að kokka ofaní ykkur ! er þá villibráð í öll mál ?
Högni Páll Harðarson, 2.5.2008 kl. 00:20
Sæll Högni! Verið þið feðgar velkomnir í kaffi. Spakmælin eru nú ekki heilagur sannleikur en eiga oft helv. vel við. Brúnn er meistarakokkur en lítið af villibráð, það kemur samt ekki að sök, hann bætir það upp með öðru.
KV.Hilmar
Áhöfnin á Hákon EA-148, 2.5.2008 kl. 08:12
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.