Loksins byrjaðir að toga
17.4.2008 | 07:48
Góðan dag gott fólk! Þessi löndunar innivera var ekkert nema vesenið. Byrjuðum á að landa Kolmunna í bræðslu á Seyðis en það tók eina 16 tíma að landa rúmum 900t. En það er um helmingi lengri tími en venjulega, ýmsar ástæður eru fyrir þessu en þó helst sú að kolmunninn er svo horaður núna og rennur illa í lestunum. Ljósi punkturinn er frystilöndunin þar sem starfsmenn Tandrabergs bregðast ekki og kippa 700 tonnum úr frystinum á 12 tímum sléttum eins og venjulega:). Og svo kemur skandallinn!!!! Engar umbúðir tilbúnar á staðnum til að hafa með í næsta túr!!!!!! Seinkaði brottför að þeim sökum um rúma 20 tíma við lítinn fögnuð áhafnarmeðlima.
Köstuðum upp úr átta í morgun en ekkert sérstakt útlit í augnablikinu. Vonum að það lagist. Og með þeim orðum segir Marri yfir og út.
Spakmæli dagsins:Ef þú hlustar á of margar ráðleggingar, endar það með því að þú ferð að endurtaka mistök annara.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.