Haldið af stað í land......
12.4.2008 | 11:22
Góðan dag gott fólk! Vill birja á því að þakka Múffa fyrir frábærar blogg færslur sl. mánuð. En nú er að styttast í frí hjá kallinum og hefur hann eftirlátið mér bloggið:).
Það helsta í fréttum af okkur er að við hífðum í morgun c.a. 150 tonn eftir 15 tíma og ákveðið að snúa rassinum í þetta veiðisvæði og halda áleyðis í land. Fylltum frystinn upp úr miðnætti og erum með eitthvað um 1000 tonn í bræðslu. Læt hér fylgja eina bras mynd. þurftum að sækja stertinn á léttabátnum um daginn þegar festing fyrir hann slitnaði af pokanum. Strákarnir voru ekki lengi að því en það er eins og með allt bras að sumum brestur þolinmæðin meðan á því stendur. Annars allt gott af okkur væntanleg heimkoma, ef við rekumst ekki á kolmunna, verður væntanlega aðfara nótt þriðjud. Kem til með að gefa nákvæmari tíma þegar nær dregur. Og með þessum orðum segir Marri yfir og út.
Spakmæli dagsins: Það að nema staðar andartak stöku sinnum er oft eina leiðin til þess að vera fær um að halda áfram.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.