Rockall
11.4.2008 | 00:02
Jæja sælt veri fólkið.
Fengum í dag um 200 T eftir 12 tíma tog, eitthvað farið að tregast hjá körlunum. Erum komnir með um 560 T í frystilestina.
Bloggritari þakkar allar athugasemdir og "Poolararnir" samir við sig með sínar fátæku athugasemdir. Segir eiginlega allt sem segja þarf um þá!!!
Annars er gullkornið eftirfarandi:" Ríkar stúlkur líkjast gullúrum,- kassinn er bestur."
Og síðasta erindið í þroskasögunni er:
Eftir þennan tíma er löngun best að leyna
og láta ekki glepjast þó konan vilji reyna.
í átökunum getur sálin gengið öll úr lagi
þú gætir orðið bráðkvaddur úr ellireiðarslagi.
Múffi kveður og segir yfir og út.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.