Fréttir af Rockall..

Jæja sælt veri fólkið.

Fengum í morgun u.þ.b.240 T og ættum að vera komnir með um 470 T í frystinn núna um miðnættið.

Nú þurfa þeir mágarnir Gaui og Addi í brúnni að fara að setja í gúanó-gírinn og stefna á að landa á Neskaupsstað strax eftir helgi.

Annars er það helst að frétta að Arsenal-karlarnir eru frekar framlágir þessa dagana Errm, Liverpool-karlarnir eru gjörsamlega óþolandi W00t, Man United karlarnir náttúrulega alveg sér í sínum heimi, aleinir.Alien

Við Chelsea karlarnir virðumst vera einu karlarnir sem eru niðri á jörðinni.Smile

Gullkornið er: "Þeir sem halda þrumandi ræðu, gæta þess ekki ætíð, hvar eldingunni slær niður."

Níunda erindið í þroskasögunni er:

Um áttrætt virðist sjálfsagt að hafa hug á konum
í hjartanu er ylur og löngunin að vonum
þér finnst það skipta máli hjá meyjunum að vera
en manst þó stundum ekki hvað þú ætlaðir að gera.

Múffi segir yfir og út.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

 sæll múffi Gott að heyra að allt gengur vel viltu biðja sævar sigmars að senda mér linu góða veiði og bskv ti áhafnarinnar  mbk þorgeir  

þorgeir baldursson (IP-tala skráð) 10.4.2008 kl. 08:54

2 Smámynd: Aðalsteinn Jónsson SU-11

Auðvitað eru Manchester United kallarnir alveg sér í heimi, aleinir.  Hvernig er annað hægt þegar að liðið sem þeir halda með er alveg í sér klassa, það langbesta í heimi

Aðalsteinn Jónsson SU-11, 10.4.2008 kl. 10:16

3 Smámynd:  Áhöfnin á Hákon EA-148

Mér finnst nú ekki skrítið að Múffi chelsea maður sé niður á jörðinni, enda maðurinn enginn léttavara. kv golli jó

Áhöfnin á Hákon EA-148, 10.4.2008 kl. 11:44

4 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Upgrade your email with 1000's of emoticon iconsUpgrade your email with 1000's of emoticon iconsUpgrade your email with 1000's of emoticon icons

Kjartan Pálmarsson, 10.4.2008 kl. 23:57

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband