Rífandi gangur.
7.4.2008 | 21:58
Sælt veri fólkið.
Fengum í dag u.þ.b. 170 T og liggjum nú á meltunni og frystum og frystum. Erum komnir með um 240 T í frystilestina. Rífandi gangur í þessu hjá okkur.
Gullkornið er: "Hóflega drukkin kona gleður mannsins hjarta."
Áttunda erindið í þroskasögunni er:
Um sjötugsaldri finnst þér aftur fjörið vera að lægja
þú ferð nú yfirleitt að láta gömlu brýnin nægja .
Það miðar hægt ef vindurinn stendur beint á stefnið
þú stundar þetta bara til að halda þér við efnið.
Múffi kveður og segir yfir og út.
Athugasemdir
Kjartan Pálmarsson, 7.4.2008 kl. 23:15
innlit
Guðmundur St. Valdimarsson, 8.4.2008 kl. 18:21
Gott blogg hjá þér múffi og gangi ykkur vel veiðinni og áfram liverpool jé...moða fo....
dogy (IP-tala skráð) 8.4.2008 kl. 23:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.