Karlarnir á landleið.
1.4.2008 | 10:25
Jæja gott fólk þá er enn eitt landstímið hafið. Hífðum í gærkvöldi u.þ.b. 300 T og lögðum af stað í land um kl 23:00. Frystilestin full 700T og u.þ.b. 1200 T af gúanói.
Ættum að vera komnir í land í Fuglafirði í Færeyjum á miðvikudagskvöldið, gúanólöndun aðfaranótt fimmtudags og frystilöndun samfara því út aftur í annan túr seinni part fimmtudags.
Heyrst hefur á göngunum að áhafnarskiptum verði frestað þar til eftir næsta túr.
Gullkorn dagsins er: "Þakklætið er mál hjartans"
Fjórða erindi í þroskasögu karla er:
Frá tvítugu til þrítugs blómstrar lífsins leikur
löngunin er stöðug og andi holdsins veikur.
Þú lætur eins og knapi á ljónfjörugum hesti
þig langar til að gera það á klukkutíma fresti.
Múffi segir yfir og út.
Athugasemdir
Sælir félagar! Rokgangur á þessu hjá ykkur. Er nokkuð 1 apríl í Múffa kallinum, þetta með löndun í Færeyjum:). Jæja maður sér það á morgun. bestu kveðjur Marri
Áhöfnin á Hákon EA-148, 1.4.2008 kl. 18:51
Múffi er í því að toppa sig ekki bara að maður bíði spenntur eftir næsta gullkorni heldur er manni haldið gangandi með framhaldssögu kveðskap.
kveðjur til ykkar allra.
Högni Páll Harðarson, 1.4.2008 kl. 20:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.