Hákons-fréttir.

Sælt veri fólkið.

Fengum 200 T í gær og ættum að verða búnir að frysta það í nótt. Reiknum með að verða komnir með um 460 T í frystilestina núna um miðnættið. Höfum bara verið að láta reka á meðan að vinnslan er í gangi. Búið að vera hálfgerð bræla í dag. Eigum þá eftir að frysta  250 T og veiða 1300 T í bræðslu.

Annars er allt gott að frétta af okkur, við erum vel haldnir og aldir, nýi matsveinninn sér fyrir því. Veisla á hverjum degi, fengum t.d. áðan nautasteik með bernis og bökuðum kartöflum.

Gullkornið er: " Allir gjörum vér meira illt og minna gott heldur en í raun og veru ásetningur vor er"

Læt hér fylgja með fyrsta erindið í þroskasögu karla:

Barnaskólaárin eru mörgum fersk í minni
því miklar verða breytingarnar á líkamsstarfseminni.
Mörgum fer þá bráðlega að leiðast lestrarstritið
þá læðist gjarnan inn í kroppinn fyrsta hvolpavitið.

Múffi segir yfir og út.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Alt er gengið upp hjá bílakarlinum,fékk imprezuna borgaða til baka.er enn á bmw 330ix.hvað er í matinn á sunnudaginn???? frábær síða Múffi mætti samt uppfæra oftar.

Sævar Sigmarsson (IP-tala skráð) 29.3.2008 kl. 11:27

2 Smámynd:  Áhöfnin á Hákon EA-148

í bljúgri bæn og þökk til þín sem þekkir mig og verkin mín. Já sælir pungar bið að heilsa og segi ég að hætti golla yfir og út og koma svo ekkert emty with frames kjaftæði  bara keira á þetta.

Áhöfnin á Hákon EA-148, 29.3.2008 kl. 21:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband