Vagg og velta
21.3.2008 | 10:09
Jæja jæja-sælt veri fólkið.
Af okkur er það helst að frétta að við stútfylltum bátinn af gúanói seint á miðvikudagskvöldið og lögðum strax af stað til Neskaupsstaðar. Miðað var við að við yrðum þar á laugardagsmorgun en veðurguðirnir hafa sett strik í reikninginn hjá okkur og er útlit fyrir að okkur seinki eitthvað. Kl 09:00 voru 320 sm eftir og gekk skipið á því augnabliki 8 sm. Gert er ráð fyrir að veðurguðirnir fari mildari höndum um okkur þegar líða fer á daginn og vonir standa til að við náum á áfangastað upp úr hádegi á laugardag. Menn hafa lítið gert annað en að halda sér og reyna að skorða sig í kojunum.
Gullkorn dagsins er: "Sonur mun efast tvisvar um vitsmuni föður síns áður en hann efast einu sinni um hjartarlag móður sinnar".
Múffi kveður yfir og út.
Athugasemdir
Ég virðist eiga í einhverjum vandræðum með að kvitta á moggabloggið héðan, þannig að ég prófa þetta bara handvirkt núna. Ég vona að þið eigið góða ferð heim og veður og vindar fari aðeins að slaka á. Þetta er búinn að vera með eindæmum leiðinlegur vetur, svona veðurfarslega séð.
Guðmunduur St. (IP-tala skráð) 21.3.2008 kl. 19:52
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.