Löndun á laugardag fyrir páska á Neskaupsstað.
19.3.2008 | 11:54
Sælt veri fólkið.
Af okkur er það helst að frétta að síminn komst í lag í gær með góðri aðstoð manna í landi. Sumir sögðu nú reyndar að nú væri friðurinn úti. Það á nú reyndar ekki við um Dodda kokk því hann er búinn að vera í símanum síðan hann kom inn. Er reyndar að leita af kokki til að leysa sig af og er þessari auglýsingu hérmeð komið á framfæri.
Sigruðum frystilestin núna í morgun og núna vantar okkur aðeins 150T + í bræðslu.
Fyrir hugað er að landa á Neskaupsstað á laugardaginn.
Gullkorn dagsins er: "Það verður sumum mönnum til óhamingju, að hamingjan hefur verið þeim of fylgisspök"
Múffi kveður og segir yfir og út.
P.S. Hvetjum fólk endilega til að kvitta fyrir í gestabókina ef það lítur inn.
Athugasemdir
kíki alltaf við hja ykkur og skoða hvað er í gangi , mættu samt vera myndir með færslunum (það er allavega mín skoðun ) vona að allt gangi eins og það á að vera, bið að heilsa meistara möller og jóni gunnari og þeim sem ég þekki þarna
Haukur Grettisson (IP-tala skráð) 19.3.2008 kl. 12:51
Ég lít alltaf reglulega við hjá ykkur, snildar korn hjá Múffa gott að heyra að það gengur vel hjá ykkur kær kv frá Margréti og Áskeli yfir og út
Geir Zoega (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 03:31
Flott gullkorn og gott að þið náðuð að sagra frystilestina, gangi ykkur vel kv frá Huginn ve
Gunni Ella P (IP-tala skráð) 20.3.2008 kl. 15:45
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.