Löndun í Brest - Frakklandi?
17.3.2008 | 10:26
Jæja sælt veri fólkið. Lítið að frétta af okkur, erum komnir með ca 450 T í frystinn. Fengum 130T í nótt en nú virðist botninn að vera dottinn úr þessu, ekkert að sjá á svæðinu núna þannig að við erum að færa okkur sunnar í einhverjar aflafréttir.
Væntanlega verðum við komnir svo sunnarlega að það verður styttra að landa í Brest í Frakklandi heldur en að sigla með aflann til Íslands. En þetta er nú kannski bara óskhyggja!
Gullkorn dagsins er: "Þrennt skaltu lifa í sáttum við: Konu þína, maga þinn og samvisku þína."
Múffi kveður og segir yfir og út.
Athugasemdir
sælir félagar þið væruð fínir í France með motturnar i andlitinu alla vega Doddi hann yrði eins og innfæddur, en hvaða leigaraskapur er þetta er Geir Zoega og félagar að fiska ykkur í kaf? kveðja frá Golla jó sem er að skríða saman.
Áhöfnin á Hákon EA-148, 17.3.2008 kl. 16:35
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.