Smáfréttir

Sælt veri fólkið. Lítið að frétta af okkur, verðum komnir á veiðislóð í nótt.  Karlarnir köstuðu trollinu í dag svona til að prófa búnaðinn og strekkja á gröndurum.

Annars er mannskapurinn bara slakur og styttir sér stundir við kvikmyndaáhorf. Svo er mottukeppnin í fullum gangi og margir orðnir nokkuð smekklegir.

Doddi kokkur er búin að vera með ákveðið súpuþema í matargerð núna síðustu daga. Í  gær fengum við í hádeginu tvær gerðir af súpum annarsvegar sveppasúpu og hinsvegar brokkolisúpu. Í dag fengum við svo fiskisúpu ,mjög góða,  og aftur brokkolisúpu ásamt  nýbökuðu brauði.   Kunnum við Dodda kokki  bestu þakkir fyrir.

 

Gullkornið er: "Eyðslufrek kona er verri en eldur í búi"

Múffi kveður yfir og út.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband