Kolmunnaveiðar enn og aftur.

Sælt veri fólkið.  Lönduðum síðusta loðnufarminum okkar á þessari vertíð í Reykjavík á mánudaginn.  Því miður virðist ekki ætla verða gefinn út meiri kvóti þannig að nú er bara að snúa sér að kolmunnanum.  Fórum frá Reykjavík áleiðis á kolmunnamiðin vestur af Írlandi um fjögurleitið aðfaranótt þriðjudags.

Túrinn byrjaði nú ekkert voða vel hjá okkur, bæði sími og netbúnaður bilaðaður. Tókst samt að virkja fjórar tölvur inn á net með aðstoð úr landi en símasambandslaust verður væntanlega við okkur þennan túrinn. Sérfræðingarnir í landi kalla þetta víst "Hardware problem". 

Múffi kveður með gullkorni dagsins:

" Ef þú getur haldið ró þinni þegar aðrir eru að fara á taugum er það vegna þess að þú skilur ekki hvað um er að vera"


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd:  Áhöfnin á Hákon EA-148

Gaman að sjá að Múffi hæstráðandi í Sniglabandinu er mættur um borð vona að gangi allt í haginn hjá ykkur drengir, Golli Jo biður að heilsa.

Áhöfnin á Hákon EA-148, 12.3.2008 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband