...og þá var sagan öll......
7.3.2008 | 08:22
Sælir góðir hálsar. Maður þyrfti nú helst að blogga á hverjum degi svo hratt gerast hlutirnir þessa dagana. Eftir löndun í Helguvík smelltum við okkur á loðnumiðin en það tók okkur ekki nema rúma tvo tíma. Nældum við okkur í tæp 500 tonn af þessari úrvalsloðnu og mátti ekki tæpara standa því við vorum rétt að klára að renna í gegn síðustu sporðunum af því sem við fengum á mánudeginum. Erum langt komnir með að vinna þessi 500t, hrignan flokkuð frá í kreistingu, og verður kastað núna þegar fer að birta. Það verður væntanlega síðasta kastið okkar á þessari loðnuvertít!!!!! Það hefur eitthvað að gera með markaðsmál og söluhorfur til rússanna, það fer eitthvað illa í þá að borða kafloðna loðnuhænga. Fyrir þá sem ekki vita þá tekur hængurinn stórum breytingum þessar vikurnar sem hrygningartíminn stendur yfir. Hann dökknar mikið og á hann vex einhverskonar hárrönd á báðar hliðar eftir endilöngum fisknum. Og fyrir vikið virkar hann mikið stærri og stæltari. Er þetta eitthvað sem konur kannast við í fari okkar karlmannanna?. Þá fer maður að setja punktinn fyrir aftan þessi skirif í dag og Marri segir yfir og út.
Es. Læt hér filgja með mynd af rússnesku eftirlitsmönnunum. Eða kannast einhver við þá?
Kornið: Barnið er lykill sá, er upplýkur hjörtum mannanna, af öllum stéttum karla og kvenna, auðugra og fátækra í öllum löndum.
Athugasemdir
það virðist allavega brostinn á fengitími hjá þessum hængum miðað við hvað þeir eru loðnir í framan
Slyngi (IP-tala skráð) 10.3.2008 kl. 10:13
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.