Ó Helguvík, Ó helguvík........
5.3.2008 | 07:24
Erum í þessum skrifuðu orðum að leggjast að bryggju í Helguvík. Erum að fara að landa loðnu í hrognatöku. Þetta er nú sólarhring fyrr en ég ætlaði en það kemur til af því að það var meiri hrygna í seinna kastinu en því fyrra. Strákarnir stóðu sig vel í frystingunni síðasta sólarhringinn en þá fóru 158,4 tonn niður í frystinn og er það með því mesta sem afköstin leifa. Til hamingju með það strákar. Og þá segir Marri yfir og út:)
Kornið; Sorgin er Guðs verk, en áhyggjurnar sköpum við okkur sjálfir.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.