Það var þá nóg af loðnu eftir allt...........
4.3.2008 | 07:41
Góðan dag gott fólk! Það hefur nú gengið á ýmsu frá síðustu færslu. Rifum nótina nokkuð illa sl. laugardagskvöld og var farið inn til Rvíkur með hana til viðgerðar. Við notuðum tækifærið og lönduðum 460 tonnum af afurðum og vorum komnir á loðnumiðin í gærmorgun. Fengum ágætis afla í gær og erum að frysta á rússann og flokka kellinguna (hrygnuna) frá sem á svo að landa í kreistingu í Helguvík. Það verður væntanlega á fimmtud. eða föstud. Seinna kastið okkar var það gott að við vorum aflögufærir um nokkur tonn og dældum tæpum 300 slíkum í Börk NK og læt ég fylgja með mynd af því. Annars er allt gott af okkur hér. Það er búið að starta mottu keppni og taka ótrúlegustu menn þátt. En eins er þó sakknað á meðal keppanda, en það mun vera Golli Jó. ( Golli er ekki búið að skera þig upp við kviðslitinu?) Marri segir yfir og út með þeim orðum.
Börkur að þiggja.
Kornið: Heilbrigt hjónaband er ekki fyrst og fremst byggt á hreinskilni, heldur miklu fremur á skynsamlegri þögn.
Athugasemdir
Sælla er að gefa enn að þiggja
Kjartan Pálmarsson, 4.3.2008 kl. 09:44
Jú sælir félagar var skorinn i gær og liðanin eftir því, allt gekk vel og nú er bara að setja i fyrsta gír og vera í honum næsta mánuð. kv Golli Jó.
Áhöfnin á Hákon EA-148, 4.3.2008 kl. 18:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.