Vantar meiri kvóta.......
1.3.2008 | 08:31
Allt gott af okkur hér á Hákoni:) Fengum ágætis kast í fyrrakvöld af loðnu sem var frystingarhæf á Japan. Kláruðum í nótt að flokka hana og birjuðum að frysta á rússann. Hrognafyllingin var komin upp í 23% og þar með að fara yfir mörkin sem japsarnir setja. Þá sjáum við væntanlega á eftir þeim félögum Tanaka og Taka sem eru eftirlitsmenn kaupanda hér um borð. Áttum bara um 1100 tonn eftir af kvóta þegar þessi veiðiferð hófst þannig að það verður harla lítið eftir þegar henni lýkur. Nú bráðvantar að gefa út meiri kvóta og vonandi bera þessir fræðingar gæfu til þess. Og með þessum orðum segir Marri yfir og út.
Tanaka og Taka
Kornið: Vertu vingjarnlegur við fólk á leið þinni á toppinn því þú átt eftir að hitta það á leiðinni niður.
Athugasemdir
Samkvæmt vef fiskistofu eru 3935tonn eftir á Hákon EA í gær voru það 1600tonn kv Gúi
Áhöfnin á Hákon EA-148, 1.3.2008 kl. 14:41
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.