Loðna, loðna, loðna......
28.2.2008 | 07:15
Jæja gott fólk þá kemur loksins meira blogg. Það fór eins og undiritaður grunaði:) Það er nóg loðna í sjónum, bara að sýna þolinmæði. Annars eyddum við einum og hálfum sólarhring í höfuðborginni meðan óvissuástandinu varði. Yfirgáfum höfuðstaðinn kl.17:30 í gær eftir að búið var að aflétta loðnuveiðibanninu og vorum komnir á miðin austan við Eyjar í nótt. Guðjón kallinn var ekki að tvínóna neitt við hlutina og setti í rúm 300 tonn og er vinnsla þegar hafin. Hrognafylling er uþb. 23% og sleppur það til á Japan. Það má segja að miklir peningar hafi tapast á þessu stoppi, bara hér um borð hefði verið hægt að frysta 600 tonn á þessum tíma!!! Marri segir yfir og út og gangið á guðs vegum.
Kornið:Feitt borðhald gerir magran arf.
Athugasemdir
Til lukku með áfangan. Vonandi finnst meira af loðnu
Guðmundur St. Valdimarsson (IP-tala skráð) 28.2.2008 kl. 11:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.