Loðnuleysi........

Góðan dag gott fólk!  Hér um borð eru allir dauðhneykslaðir yfir ákvörðun stjórnvalda að stöðva loðnuveiðar um óákveðinn tíma. Á meðan milljarðar synda frá okkur eru hafrannsóknarskipin bundin við bryggju. Þeir hafa væntanlega ekki heyrt máltækið "þeir fiska sem róa". Við vitum það sem hafa stundað loðnuveiðar að það getur verið klukkustunda munur á veiðislóð þegar loðnan er annarsvegar, eina stundina ekkert og svo allt morandi þá næstu.

 En af okkur er það helst að við verðum búnir að fylla frystinn um eða eftir miðnætti og segja gangafréttir að það verði þegar hafist handa við löndun þegar frystirinn er fullur. En það kemur í ljós í dag hvort það verði landað fyrr.  Stórt skarð var höggvið í hóp bloggskrifara Hákons EA í gær þegar okkar ástsæli Golli Jó greindist með kviðslit. Það er trú okkar og von að hann hafi ekki kviðslitnað við bloggskrif en ef svo er þá fer maður að endurskoða þessa aukavinnu.  Óskum við Golla góðs uppskurðar og skjóts bata. Og með þessum orðum segir Marri yfir og út .

Gullkorn dagsins: Falskur vinur er eins og skugginn. Í sólskini er ekki hægt að losna við hann en þegar syrtir að er hann hvergi sjá. 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband