Meiri afli og allir vinir!
15.2.2008 | 05:15
Jæja gott fólk við erum að tala um rétt tæp 500 tonn í lestinni og nó af afla til, Kallinn (Guðjón Captain) tók sig til og keyrði á miðinn í gær og kastaði litlu nótinni og fékk þetta fína kast þannig að við erum komnir með nægan afla til að fylla, þannig að þetta er bara gleði, en ekki verður gleðin mikil hjá okkur ef þessi sérfræðingar setja stop á loðnuveiðar en við vonum að þeir sjái að sér hætti við þessa vitleysu. En svo við snúum okkur að öðru þá var gríðarleg þáttaka í textahorninu og verður maður því að henda fram einum fyrripart annars segir Gollinn yfir og út.
Texti dagsins: "Farðu til fjandans og taktu þennan ..............................................."
Og botnið nú!
Athugasemdir
síðhærða djöful með þér. (er ekki átt við Krulluhausinn)
Kv Olli J
Olli J (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 08:15
bölvaða fiskifræðing með þér!!!!!
baravel (IP-tala skráð) 15.2.2008 kl. 09:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.