Loðna sagði hann heillinn!
11.2.2008 | 19:33
Hér er allt gott að frétta fyrir utan veðurleysið síðustu daga, en við erum komnir á rólið og loðnufrysting er hafin erum búnir að taka eitt hol og erum að taka það á síðuna og er vel í að hætti Gaua special. Annars er mannskapurinn í góðu formi og hefur okkur borist liðsauki en það eru tveir japanar sem bíða spenntir eftir rétri hrognafyllingu í loðnunni. Jæja Gollinn er að fara að taka talningu og átuprufu úr nýja holinu segjum yfir og út.
Athugasemdir
Sælir pungar!
Það er gott að heyra þið eruð búnir að finna loðnuna!! Vonandi er hún átulaus ólíkt áhöfninni. Baráttukveðjur
Ingólfur Ásgeirsson
Ingólfur Kr. Ásgeirsson (IP-tala skráð) 11.2.2008 kl. 21:58
Sælir félagar.
Það er mikið að þið hættið þessum leikaraskap þarna suður í ra*****i. Það er vonandi að þið gerið eitthvað af viti núna loksins. Annars segi ég bara áfram Man City.........6 stig á tímabilinu á móti Man U, léttir.
KV. Baldur
Baldur (IP-tala skráð) 12.2.2008 kl. 10:59
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.