Landstím.

Jæja loksins er túrinn að verða búinn, hættum veiðum um kvöldmatarleitið í gær, þrátt fyrir gott útlit með veður og afla,  og dóluðum okkur upp undir Færeyjarnar  í gærkvöldi og nótt  svo að betur fór um drengina í vinnslunni.

Sigruðum frystilestina um miðjan dag í dag og var þá sett á fulla ferð áleiðis til Neskaupstaðar. Áætlað að við verðum þar um hádegi á morgun, þriðjudag.

Gullkorn dagsins er:"Glataður tími finnst ekki, þó þú leitir lengi."

Múffi kveður, er á leið í fríið, yfir og út.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hvað er að frétta af loðnuveiðum ??

Tobbi Villa (IP-tala skráð) 10.2.2008 kl. 18:35

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband