Borðsalsfréttir.
3.2.2008 | 11:57
Jæja loksins loksins sér fyrir endann á þessu. Fengum í gær upp úr hádeginu rúm 100 T þannig að strákarnir gátu byrjað að frysta. Hífðum svo aftur eftir kvöldmat 300 T. Smá bræla í nótt en kastað aftur um vaktaskiptin í morgun og er útlitið bara nokkuð gott. Þessi afli á að duga til að fylla frystilestina og svo er bara að bæta á í gúanó.
Hef það eftir manni sem ég mætti á ganginum sem hafði það eftir þriðja aðila að hugsanlega yrði landað frosnu á miðvikudag. Þess ber samt að gæta að þessar fréttir eru algjörlega úr lausu lofti gripnar.
Gullkorn dagsins er: "Sérhvað á sér sína orsök."
Múffi kveður yfir og út.
Athugasemdir
Hverjir semja gullkornin ! Maður er farinn að bíða spenntur eftir næsta "korni" !
Baráttu kveðjur.
Högni Páll Harðarson, 4.2.2008 kl. 00:17
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.