Aftur á veiðar.
1.2.2008 | 22:15
Jæja sælt veri fólkið. Vorum síðustu nótt í vari utan við Fuglafjörð í Færeyjum og kláruðum að frysta upp það sem eftir var af aflanum. Komnir með um 500 T í frystinn.
Fórum upp úr hádegi inn að bryggju í Fuglafirði og tókum kost og toll. Frá Fuglafirði áleiðis á miðin suður af Færeyjum um kvöldmatarleytið. Nú er bara að vona að hann gefi sig áður en næsta bræla skellur á.
Gullkorn dagsins er: "Maður dáist ekki að stúlku fyrir það sem hún segir, heldur fyrir það sem hún hlustar á."
Múffi segir yfir og út.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.