Norðanbræla.

Sælt veri fólkið.  Erum nú nýbúnir að hífa u.þ.b. 100 T  af kolmunna og þar áður um 70 T.  Höfum getað haft stöðuga vinnslu þrátt fyrir að aflinn hafi verið rýr. Verðum væntanlega komnir með um 350 T í frystinn um miðnættið.

Veðurspáin er víst ekkert of góð fyrir næstu daga þannig að væntanlega verður farið í var við Færeyjar og aldrei að vita nema að gúanóinu verði landað í Fuglafirði.

Fréttir af göngunum eru þær að það sé allavega hálfur mánuður eftir af þessum túr.  En geðheilsa manna er enn í fínu lagi.

Bloggaraskriftara hafa borist athugasemtir um att stavsedninkin sje ekki nógu góð og mun hann reyna að bæta úr tví.

Gullkorn dagsins er: "Oft er ljót vísa rituð á góðan pappír, en góð vísa á vondan pappír"

Múffi segir yfir og út.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband