Kolmuni- Kolmuni - Kolmuni.......
28.1.2008 | 22:58
Jæja sælt veri fólkið. Köstuðum trollinu síðastliðna nótt, toguðum í einhverja 4-tíma og uppskárum 70 -80 t af kolmuna. Erum að keyra það í gegn um frystingu núna. Kastað aftur um kaffi-leytið og erum við komnir með 4-punga inn þegar þetta er ritað. Þannig að útlitið er gott og sennilega verður híft um miðnættið.
Gullkorn dagsins er:"Það sem við eigum ekki að vita, eigum við ekki að óska að vita."
Múffi segir yfir og út.
Athugasemdir
En segið mér eitt, piltar mínir: Hvar er loðnan ?
Jóhannes Ragnarsson, 28.1.2008 kl. 23:01
Eruð þið ekki afskaplega og ómótstæðilega góðir við hann Andra????
halla andra kona (IP-tala skráð) 30.1.2008 kl. 19:55
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.