Bræla bræla bræla.....
24.1.2008 | 21:24
Sælt veri fólkið, nú er komin bræla á miðunum sunnan við Færeyjar og erum við karlarnir komnir í var við Suðurey í Færeyja-klasanum. En til Suðureyjar eiga þeir einmitt ættir að rekja okkar ástsælu vaktformenn þeir Flovent og Einar Möller.
Útlit er fyrir að þessi bræla standi yfir framm á laugardag og ekki fer nú illa um okkur í vari við Suðurey. Aldrei að vita nema að karlinn ákveði að fara upp að bryggju og leyfi vaktformönnunum að líta yfir æskustöðvarnar og okkur hinum að fylgjast með.
Annars fengum við u.þ.b. 100m3 af kolmuna í síðasta holinu áður en lagt var af stað í var við Suðurey og er búið að keyra það í gegn um vinnsluna þegar þetta er skrifað.
Gullkorn dagsins er ekki fyrir viðkvæmar sálir:
"Þegar slökkt hefur verið á kertum, eru allar konur fagrar."
Múffi kveður yfir og út.
Athugasemdir
Sælir félagar! Þetta eru flottar færslur hjá þér Múffi minn, haltu áfram á sömu braut:). Ég var nú búinn að vara þig sterklega við að nota þetta gullkorn, oft má satt kjurt liggja, en þú tekur bara afleiðingunum:). Annar bestu kveðjur og hafið það gott, MARI
Áhöfnin á Hákon EA-148, 25.1.2008 kl. 08:30
sælir Félagar gott að fá fréttir af ykkur en hversvegna er engin mynd af sævari sigmars á siðunni bestu kv ti ykkar með ósk um góða veiði mbk þorgeir
þorgeir baldursson (IP-tala skráð) 25.1.2008 kl. 23:53
Men í Suðureyðjum eru allar konur fagrar, eisini á ljósum degi,
Bestu kveðjur hafnafútin á Tvøroyri
Chris Jan (IP-tala skráð) 26.1.2008 kl. 00:38
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.