Allt tekur enda....

Jæja gott fólk þá er nú farið að sjá fyrir endann á þessum túr. Verðum væntanlega búnir að fylla frystinn um kaffileitið.  Þá verður væntanlega landað restinni af síldinni í vinnslu hér í Nesk og í framhaldi af því afskurði og frákasti í bræðslu. Frystilöndun er svo ákveðin á sunnudagsmorgni,  eldsnemma. Ekki er vitað hvað verður gert í framhaldinu. Engin loðnuveiði er í augnablikinu en það getur breyst á einni nóttu. Gangafréttirnar eru sjaldan sannar en fara oft nærri sannleikanum og þar hefur heyrst mynnst á Kolmunna. En þetta kemur allt í ljós.  Jæja þetta er síðasta bloggið mitt í bili, kallinn er að fara í frí.  Vonandi tekur nú einhver við af mér svo ég geti séð hvað um er að vera um borð meðan ég er í landi. En nú segir Mari yfir og út.

Kornið:Þar sem vínið fer inn, sleppur skynsemin út.Bolungavík í des 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hæ pabbi minn.

langaði bara að segja þér frá síðunni sem ég er að búa til fyrir tengdason þinn hihiihihi

hlakka til að heyra í þér endilega sendu mér meil

sonjas@internet.is

jæja ætla að fara að horfa á leikinn:)

Sonja (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 17:16

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband