Í öðru sæti......

Samkvæmt skip.is er Hákon EA með næst mesta aflaverðmæti íslenskra fiskiskipa á árinu 2007 með 1190 miljónir í aflaverðmæti (fob). Töpuðum þar með fyrsta sætinu til Vilhelms sem var með 1430 milj., til hamingju Vilhelms menn. Þetta er eigi að síðu mjög góður árangur hjá okkur mtt. að við vorum 7 vikur í slipp á síðasta ári. Þetta eru að vísu fyrstu tölur og vænti ég að bæði skipin eigi eitthvað af afurðum eftir óselt. Þannig að þetta á eftir að breytast eitthvað en þó ekki mikið.   En af okkur er það helst að þriðja lagið er sigrað og gengur bara ágætlega í vinnslunni. Stefnir í bræðslulöndun í Bolungavík í vikunni á síld og afskurði.  Skipstjóraskipti voru í gær hjá okkur en Guðjón kallin var búinn að vera með flensu frá áramótum. Vonum að kallinn nái sér nú upp úr þessu helv. Og með þeim orðum segjum við yfir og út.

Spakmæli dagsins: Fyrnist sorg þá frá líður.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kjartan Pálmarsson

Megi gleði og friður ríkja um borð á nýja árinu.

Bestu kveðjur úr Kópavoginum

Kjartan Pálmarsson, 15.1.2008 kl. 10:38

2 identicon

Til hamingju með annað sætið, einhverjum þætti silfrið bara ágætt en náttúrulega betra að hampa gullinu . Hvað kallinn varðar þá bregðast greinilega krosstré sem önnur, vonandi nær hann sér fljótlega. Kveðjur út á miðin!

Sigríður Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 16.1.2008 kl. 19:53

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband