Gott kast á síðunni.......
12.1.2008 | 07:48
Lönduðum 550 tonnum í Rvík. á fimmtudag. Mannskapurinn notar inniverur vel í höfuðborginni. Þeir sem búa á höfuðborgarsvæðinu heilsa upp á fjölskyldu og vini en þeir sem koma af landsbyggðinni skiptast í þrjá hópa. Hópur nr. 1 fer í bílaumboðin og prufukeyra alla helstu lúxusbílana. Hópur nr. 2 gerír stórinnkaup í heimilistækjaverslunum og þriðji hópurinn fer í Kringluna á kaffihús og horfa í kringum sig!!! En þá að yfirstandandi veiðiferð. Vorum komnir á Grundarfjörðinn á föstudagsmorgni og köstuðum nýviðgerðri nótinni kl 10:30. Og það varð ekkert smákast! Náðum að fylla allar lestar en þá voru eitthvað um 50-100 tonn eftir í nótinn. Þar sem bannað er að henda fisk þá brá Guðjón skipstjóri á það ráð að bakka út á dýpra vatn svo hægt væri að hefja vinnslu og unnum við framm yfir miðnætti beint úr nótinni. Þakka þórólfi fyrir athugasemdina og eru bestu kveðjur frá öllum um borð til hans með von um góðan bata. Segjum gott í bili og Mari segir yfir og út.
Athugasemdir
Gott að sjá að þið eruð að taka á því og er greinilegt að krulluhausinn er að koma grimmur inn það fiskast sannarlega vel að kvikindið Marri minn gaman að sjá að lengi lifir í gömlum glæðum og Gollinn segir yfir og út.
Áhöfnin á Hákon EA-148, 12.1.2008 kl. 22:09
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.