Góð byrjun á nýju ári.
6.1.2008 | 07:38
Sælt veri fólkið! Héldum til veiða 2.jan stundvíslega kl 19:30 og vorum mættir í Grundarfjörðinn að morgni þess þriðja. Guðjón kallinn var ekkert að láta okkur bíða eftir síldinni heldur setti í 350t og var vinnslan komin í gang um kaffileitið. Það hefur gengið á ýmsu í vinnslunni og ber hæst mikið tjakkstangarfár á innmötunarlyftu bakborðs frystitækis. En allt fár tekur enda. Í vinnslustoppi í gær, meðan verið var að kasta nótinni, var lagst yfir úrbætur og stillingar á lyftunni og hefur hún verið til friðs síðan. (7, 9, 13) Fengum uþb. 400t í gærdag af fallegri síld þó ekki á Grundarfirðinum heldur inn undir Stykkishólmi. Það má segja að þessi síldarvertíð hafi verið með ólíkindum, allur kvótinn tekinn hér vestanlands. Annars erum við búnir að hækka um gat í frystinum þannig að það er bara gangur í þessu hjá okkur. Áhöfnin þakkar innlitin á síðuna sl. ár. Gangið á guðs vegum og Mari segir yfir og út.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.