Hvað er málið......
18.12.2007 | 19:17
Héðan er allt gott að frétta. Góður gangur í vinnslunni og fært upp í efsta gat í morgun. Engin ábót á síldina hjá okkur, hvorki í gær eða í dag. Verðum búnir að vinna það sem til er um borð um hádegisbil á morgun. Annars er heitasta málið hér um borð hvenær við verðum í landi fyrir jól. Hvort það verði föstudagurinn eða laugardagurinn, það er vandi um slíkt að spá. Hvað er eiginlega málið með að ekki skuli vera hægt að gefa það út? Það skiptir ekki máli hvor dagurinn er og sama hvort við verðum ekki inni fyrr en á þorlák. Ef bara væri hægt að ákveða það. Að þeim orðum skrifuðum segir mari, yfir og út.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.